Meistari i manud...

Meistarmánuður 2011 - Dagur 7/8

Áfram heldur ballið. Þar sem ég er eins og fólk ætti að vita ekki beint að gera neitt á daginn þá er þetta voða rólegt allt saman. Kíkti örlítið á tónleika á fimmtudaginn, edrú að sjálfsögðu. Mikil ósköp á ég erfitt með að skemmta mér edrú innan um fullt fólk. Það verður bara að viðurkennast.

Föstudagskvöldið var rólegt, Egill Strange kíkti yfir í smá fifa ekki mikið annað á dagskránni enda fyrsta fælles ræktin á laugardagsmorgun. Ég mætti 10:30 niðri Fitness World við Forum metro stöðina. Þar biðu mín Ragnhildur Erna og Hildur Kára. Við tókum mikla og góða hóprækt. Ansi gaman að standa saman í þessu, held við höfum verið um 2 tíma að rækta okkur upp. Í kjölfarið fyllti ég á proteindufts birgðirnar og setti mér smá matarmission fyrir næstu daga. Það er vitað mál að ég þyngist ekki án þess að borða í raun aðeins of mikið. Þyngdarmarkmiðinu skal ég ná, simple as that!

Á þriðjudaginn eru flutningar, smá skrítið að flytja samt þar sem ég er að flytja til Íslands eftir 4 vikur. Verður samt fjör að vera einn mánuð niðrá Islands Brygge. Verður spennó!


Meistarmánuður 2011 - Dagur 6

Í dag skellti ég mér á opnun á listasýningu á Nordatlantens brygge en þar mun standa yfir listasýning á verkum eftir málarann Georg Guðna sem lést skyndilega í sumar langt um aldur fram. Georg Guðni er gamall skólabróðir hans pabba en einnig náfrændi Þorsteins Kára góðvinar míns. Nánast öll stórættin hans Þorsteins er mætt til Köngs útaf sýningunni og var múgur og margmenni á opnuninni í dag. Alltaf gaman að fá smá listræna innspýtingu, hitta fólk og vera smá menningarlegur.

Vinnumálin eru smám saman að skýrast, ráðningarsamningur í höfn og höfum við aðeins verið að fara yfir hvernig þetta mun vera allt saman til að byrja með hjá mér. Ísland komið í dagatalið um mánaðarmótin Nóv/Des og spennandi tímar framundan!


Meistarmánuður 2011 - Dagur 5

Í dag hélt nördfestið áfram. Ég gat loksins æft eftir að hafa verið semí veikur síðustu daga. Dagurinn fór að mestu í einhverskonar company presentation/case workshop sem ég fór í hjá Accenture. Yfirskriftin var eitthvað í áttina “Do you want to solve business problems with the use of mathematics” og gat fólk með stærðfræðitengdan bakgrunn sem hafði áhuga á business tengdum efnum sótt um að koma.

Þarna fengum við greinargóða kynningu á ráðgjafa fyrirtækinu Accenture og í kjölfarið var okkur skipt í hópa og við áttum að leysa case. Skrítið að vinna í hóp þar sem maður þekkir engan og hefur lítinn tíma til að þróa vöru og svo kynna með “sales-pitch” í kjölfarið. Ég fann mjög greinilega fyrir því að aðrir í hópnum hafa ekki verið í svipuðum aðstæðum áður og var ein pían t.d. að reyna troða stochastic modeling inní allt. Fólkið átti smá erfitt með að stíga til baka úr stærðfræði kúlunni sinni og skoða þetta örlítið meira frá high level sjónarmiði. Samt var þetta talsvert fjör og gaman að sjá hvað hóparnir þrír gátu nálgast vandamálið á mismunandi máta.

Case-ið var að hanna application sem virkaði á allar gerðir snjallsíma og átti að gera manni kleift að borga stöðu gjald gegnum símann. Auka hlutir komu inní eins og að maður átti að geta notað það til að finna bílastæði fyrir sig, sjá hvort bílastæði væru laus o.fl. Auk þess komu fleiri business tengdir hlutir eins og hvernig við ættum að ná markaðshlutdeild framyfir þann sem er núna á markaði o.fl. Allt svona frekar opið í rauninni og það var bara mjög gaman að prófa þetta.

Hef annars lítið meira að segja í bili nema, áfram allir!


Meistarmánuður 2011 - Dagur 4

Í dag var útskrift uppí DTU. Er ekki smá meistaralegt að ná sér í meistaragráðu? Nei ég bara spyr.

Var að kenna fyrri partinn, í jakkafötum. Það var smá plebbalegt, smá fyndið en frekar skemmtilegt samt sem áður. Fór þaðan beint í útskriftina. Athöfnin var tiltölulega stutt. Rektor hélt eina hrokafyllstu ræðu sem ég hef heyrt þar sem hann talaði um að það væri aldrei nóg af verkfræðingum eins og oft vill vera með önnur störf. Sér til stuðning nefndi hann presta. Það væri bara hægt að reikna út hvað það væru margar kirkjur í landinu. BAM! þá vitum við hvað þarf marga presta. Svo jafnvel hægt að nota sama prestinn á nokkrar kirkjur á fámennum stöðum til að “spara” aðeins. Einnig er hægt að reikna út hvað það þarf margar ljósmæður í landið. Tökum bara börn sem fæðast á ári deilum því með hvað ein ljósmóðir getur tekið á móti mörgum og við höfum sirka fjölda ljósmæðra sem þarf í landið. Í kjölfarið tókst honum að líkja DTU saman við MIT og Imperial College og sagði að við værum að fá gráðu sem væri RECOGNIZED GLOBALLY. Ég veit ekki með þetta. Ansi mikið yfir strikið í hroka fannst mér.

Næst hélt formaður nemendafélagsins ræðu, hann talaði dönsku á ljóshraða sem ég skyldi ágætlega en pabbi gamli skyldi mest lítið. Að lokum var þarna vice president einhverrar deildar hjá DONG Energy sem hélt þrusugóða ræðu þar sem hann kom mikið inná hvað fjölskyldan og manns nánustu skipta miklu máli fyrir að maður nái langt. Mjög sammála honum þar sem maður þarf að hafa einhvern til að styðja mann, enda lífið ekki alltaf dans á rósum.


Hafsteinn, Þorsteinn og Día mættu í athöfnina, sem var fallega gert af þeim. Veitingarnar að athöfn lokinni voru að vísu ekki mikið fyrir meistara enda aðallega kampavín og kransakaka í boði. Við héldum því áleiðis í bæinn og skelltum okkur á veggie buffet á Riz Raz, ansi gott fyrir líkama og sál. Já, lífið getur verið gott þrátt fyrir grænmetisátu og áfengisleysi…


Meistarmánuður 2011 - Dagur 2

Eitthvað verður þetta snubbótt í dag enda hef ég verið hálf veikur og lítið merkilegt gerst. Mataræðið er í góðum horfum en sökum veikinda hef ég sleppt að æfa yfir helgina. Planið er að vakna snemma á morgun og fara á fund hjá jobcenter, segja þeim að ég sé með vinnu og þurfi því ekki að stunda CV workshop í vikunni. Mikið verður fínt að sleppa því.

Pabbi gamli kom annars til DK í dag þar sem formleg útskrift mín frá DTU er á þriðjudaginn. Það verða vonandi veitingar þar í hollari kantinum.

Stefnan er að fara á Louisiana safnið á morgun, klára þá fyrsta safnið af amk 4 sem heimsækja skal í mánuðinum. Hef annars eytt dálitlum tíma í dag í að undirbúa dagskrár lið fyrir meistaramánuðs heimasíðuna sem verður gaman að.

Sorry með stutt og leiðinlegt blogg, á að vera löngu farinn að sofa í raun. Smá svindl…


Meistarmánuður 2011 - Dagur 1

Þá er hann hafinn enn á ný meistaramánuðurinn sjálfur. Ég held að engum hafi grunað hvað þetta myndi sprengja utan af sér þetta árið. Þegar þetta er skrifað eru rúmlega 4800 manns skráðir til leika á facebook event-inn og vel yfir 600 manns hafa skráð sig á heimasíðuna. Viðtöl hafa verið tekin við strákana á fréttablaðinu, rúv og bylgjunni og einnig var innskot í Kastljósinu um daginn, þetta er meira en nokkur þorði að vona. Gaman samt að sjá hvað tekið er vel í þetta, en í raun ekki furðulegt. Allir hafa hluti á listanum sem maður er fara gera en frestar alltaf aðeins lengur og allir geta bætt einhverja þætti lífs síns á auðveldan en skilvirkan hátt, þó skiljanlega mismikið.

Ég sé talsverðan mun á áhersluatriðum fólks nú og í fyrra. Í fyrra voru menn mun meira að fókusa á hreyfingu og mataræðið en meira finnst mér um þessi svokölluðu “soft” markmið í ár, fólk talar um að það vilja rækta vináttuna, finna framtíðareiginkonuna, gefa kærustunum gjafir og þar fram eftir götunum. Ekkert að því.

Mín markmið áttu í rauninni fyrst og fremst að snúast að því að klára þessa atvinnuleit með stæl og enda mánuðinn með vinnu í höndunum. Ég hef haft mikinn frítíma í atvinnuleysinu hérna í Köben og því getað æft 4-5 sinnum í viku. Ég stefni að því að æfa 5 sinnum og vonast til að árangurinn komi í kjölfarið á því að maður bæti mataræðið og hætti að sukka um helgar. Gróflega set ég hér fram mín helstu markmið:

  • Æfa 5 sinnum í viku
  • Ekki borða nammi
  • Ekki drekka gos
  • Ekki drekka áfengi
  • Klára þjóðhagfræðibókina Macroeconomics sem ég er að lesa
  • Lesa eina skáldsögu
  • Leynilegt tölvulærdóms mission
  • Fara á fætur í allra síðasta lagi 8:00 á virkum dögum + aldrei ýta á snooze
  • Ná ákveðinni þyngd á vigtinni (vil stefna uppá við)
  • Fara á amk 4 söfn með Þorsteini og/eða Hafsteini
  • Setja hér inn færslu amk annan hvern dag

Þetta er kannski svona þetta helsta sem ég set fram til að byrja með, er samt pottþétt að gleyma einhvejru. Ég ætla einnig að vera duglegur í eldhúsinu og sinna svo litlum hlutum vel eins og að hætta fresta smotteríi og svona. Í fyrra varð mánuðurinn örlítið and-félagslegur á köflum og ætla ég því að reyna kíkja út á lífið nokkrum sinnum án þess að fá mér í glas, ekkert meistaralegt við að hanga heima hjá sér allar helgar og aldrei blanda geði við fólk.

Ástæðan fyrir því að vinnuhlutinn datt útaf af markmiðalistanum er einfaldlega sú að ég er kominn með vinnu nú þegar, lítur allt út fyrir að ég sé að flytja heim í lok næsta mánuðar. Ísland þarf að fara passa sig…

Annars vil ég bara óska mér og öðrum meisturum góðs gengis, þetta verður fjör. Fulla ferð!



Sagdi einhver djamm? (Taken with instagram)



I’ve got bitches in my living room (Taken with instagram)


Dagur 30 - Uppgjörið

Þá er þetta bara að fara klárast. Síðasti official dagurinn í dag og mikið vatn runnið til sjávar. Ég held ég hafi sjaldan verið í betra formi en akkurat núna og mér líður í raun hrikalega vel dags daglega. Ef ég ætti að summera aðeins upp jákvætt og neikvætt frá mánuðinum þá held ég það sé einhvernveginn svona

  • JÁKVÆTT
  • Bætt mataræði varð til þess að opna hug minn gagnvart nýjum matarhugmyndum
  • Að byrja borða ávexti að frekar miklu leyti er góður vani sem ég mun reyna halda áfram.
  • Mikil hreyfing hefur komið mér í að mér finnst mjög gott form, mun stunda þetta áfram.
  • Að drekka ekkert gos eða borða nammi var erfitt fyrst, en akkurat núna langar mig tildæmis ekkert í gos eða nammi.
  • Tók upp hrikalega góða föstudagsrútínu með Þorsteini sem innheldur líkamsrækt, borða saman góðan mat og chilla svo vel og mikið með góðum vinum.
  • Að hætta sofa út þó maður sé í fríi fær mann til að nýta alla frídaga mun betur því þeir fara ekki í of mikinn svefn, svo verður maður líka bara oft þreyttur á því að sofa of mikið.
  • NEIKVÆTT
  • Var ekki nógu outgoing, sumt fólk hitti ég hreinlega ekki í þessa 30 daga
  • Að drekka engan bjór í 30 daga er ekki gaman
  • Stundum erfitt að vita hvað maður á að borða á daginn þegar maður má ekki borða brauð og/eða pasta o.fl.

Í tilefni þess að ég tók mynd á fyrsta degi þá henti ég í mynd áðan eftir æfingu.

Gamli drullz vs. Nýji Drullz

Okeeeey, fyrir þá sem ekki sjá neinn mun þá er after myndin til hægri. Útfrá myndunum má í raun greina tvennt

  • Hárið á mér vex (það var nú svosem vitað)
  • Ég hef minnkað

Ég er í alvörunni minni á nýju myndinni, en ég ætla vona að það sé vegna þess að ég stend aðeins aftar. Það væru nú bölvuð leiðindi ef ég væri að minnka því ég er nú nógu fjandans lágvaxinn fyrir.

En svona að öllu gríni slepptu þá voru þetta auðvitað bara 30 dagar og ekki eins og maður hafi verið á einhverjum sterum þannig það var kannski ekki við því að búast að maður færi að taka einhvern Ronnie Coleman á þetta. En eins og ég hef áður komið inná þá finnst mér ég vera bara kominn í fjandans fínt form, þó að þá sjáist kannski ekki það vel og ég mun halda áfram að worka þessa rækt á næstunni, FULLA FERÐ! (Gefið mér nú samt að það sjáist smá, hmmmmmm haaaaaaaa?!?)

Ronnie Gamli…

Klukkan 12 á miðnætti verður svo tekin tveggja manna mannhrúga hér í Gyngemose til að fagna því að við höfum klárað mánuðinn með stæl. Mannhrúgan er þekkt aðferð til að fagna innan fótboltageirans. Mannhrúgan er vanmetin fyrir utan íþróttabransann finnst mér.


Dagur 28 - Menningin í hávegum höfð

Hér sit ég og snæði afganga gærdagsins, hlusta á Phoenix og skrifa bloggfærslu. Það er næstsíðasti dagur meistaramánaðar og ég er nýkominn af morgunæfingu. Ansans ári sem það er gott að starta deginum með smá hreyfingu.

Í gær var hent í smá thaimix búið til eftir engri uppskrift. Basicly engifer, hvítlaukur, laukur, chillipipar svitsað á pönnu. Útá þetta var svo dúndrað svínakjöti og það látið steikjast soldið. Að lokum var svo sett kókosmjólk útá allt saman og smá grænmeti látið malla í þessu. Meðlæti var svo bara brún hrísgrjón.

No Pasta No Bread vikan er að tapa all rækilega fyrir íbúum Gyngemose því við erum búnir að vera með nóg af hugmyndum. En nú eru bara tveir dagar eftir af þessu öllu saman og spurning hvað tekur við eftir það.

Í gær skellti ég mér CPH:DOX sem er heimildakvikmyndahátíð hér í Köben. Á dagskránni var íslenska tónlistarheimildamyndin Backyard. Hún var líka svona helvíti skemmtileg. Myndin gerist í raun kringum Menningarnótt í Reykjavík árið 2009 og er unnin útfrá hugmynd nokkurra félaga að taka upp smá tónleika í bakgarðinum heima hjá öðrum þeirra og gera mynd í kringum það. Böndin í myndinni eru Hjaltalín, Reykjavík!, Retro Stefson, FM Belfast og fleiri íslensk “grasrótarbönd”. Ég get hiklaust mælt með þessari mynd fyrir alla, bæði konur og kalla.

Að myndinni lokinni voru svo tónleikar með Hjaltalín í bland við smá visual show frá Sögu Sig og Hildi Yeoman, fjandans fínt.

Ég var reyndar semi nýbúinn að sjá Hjaltalín tvisvar því þau spiluðu hér í Köben fyrr í haust og svo fór ég með þeim til Hamborgar í lok september þar sem þau voru að spila á festivali. Ég var því í raun ekkert með alltof miklar væntingar þannig séð fyrir tónleikana, en þeir komu mér skemmtilega á óvart. Mjög solid sound og svo tóku þau nokkur ný lög sem ég hafði ekki heyrt áður og visual showið gaf þessu skemmtilegan aukablæ ef svo má segja.

Í raun var þetta mjög vel farið með sunnudagskvöld, að skella sér á þetta. Fólk var að sjálfsögðu að fá sér bjór þarna fyrir og eftir allt húllumhæ-ið, ég viðurkenni það, mig langaði ógeðslega mikið í bjór, en ég bugaðist þó ekki. En það er nú líklegast smá lokafagnaður meistaramánaðar á fimmtudaginn svo áfengið fær að bíða einhverja 3 daga í viðbót.


13
To Tumblr, Love PixelUnion

We're updating Fluid!

Soon, we'll be updating the look and feel of this theme. Read about the changes here. You can easily turn off this notification in the theme customization panel.

Close